Forsíða

Innskráning

joomla_nidurhal.png

Nýjar viðbætur

Joomla! Extensions Directory
Joomla! Extensions Directory
Velkomin á síðu Joomla samfélagsins á Íslandi
Joomla v1.5.8 komið út og uppfærð þýðing. Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af RadoX   
Laugardagur, 22 Nóvember 2008 02:00

Ny-utgafa.pngJoomla 1.5.8 er komið út

Þessi útgáfa er með mikið af lagfæringum frá fyrri útgáfu og eins og alltaf er mælt með að fólk uppfæri síðuna sína.

Ef þú hefur áhuga á að sjá hvað er nýtt í 1.5.8 þá getur þú séð það hér

 

Þýðing á 1.5.8 site er einnig komin út

 

Þýðingin á admin hlutanum

Verðið að afsaka það að ég hef voðalega lítið unnið í þýðingunni síðasta mánuðinn eða tvo, stundum verður maður að taka frí frá þýðingum því þetta tekur soldið á þolinmæðina og áhuginn á það til að hverfa um tíma, en það þýðir samt ekki að maður sé hættur. Það er ekki mikið eftir að þýða af admin hlutanum svo þetta á að geta klárast fljótlega ef í það er farið af krafti. Það hafa nokkrir boðið mér hjálp en aðeins einn af þeim hefur skilað einhverju inn og ég vill þakka honum Alex fyrir það, vona að hann komi til með að hjálpa meira.

Installerinn er líka verið að þýða svo þegar þetta er allt komið (síðu+admin hlutinn+installer) þá erum við komnir í raun með íslenskt vefumsjónarkerfi frá A-Ö því við munum gefa út pakka með Joomla kerfinu og þýðingum sem verður forstillt á íslensku. Vona að það líði ekki mjög langur tími þangað til það gerist.

 

kv. Magnús

LAST_UPDATED2
 
Smá skilaboð Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af RadoX   
Fimmtudagur, 09 Október 2008 12:48

Við viljum þakka Landgræðslunni fyrir þeirra orð í gestabókinni og viljum bara segja á móti að það er sönn ánægja að geta lagt ykkur lið.

 

Við viljum benda á að þeir sem sem skrá sig fá staðfestingarpóst en sá póstur vill oft lenda í ruslpóstsíum svo endilega athugið í þeim áður en þið byðjið um hjálp.

 

 
Smá fréttir 30-09-08 Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af RadoX   
Þriðjudagur, 30 September 2008 11:37

Þýðingin á Joomla 1.5

Jæja admin þýðingin fer að klárast bráðum en ég tók mér smá frí frá þýðingum áður en ég fer í síðasta hlutann á því. Ég þarf líklega einhverja gagnrýnendur eða beta testers áður en ég gef þetta svo út þannig að það væri ágætt ef þið hafið áhuga á að ganga í það að láta mig vita. Installerinn verður líka tekinn og lagfæring á framhlutanum einnig áður en við gefum út nokkurskonar final útgáfu.

 

Viðbætur fyrir Joomla 1.5

Ég ætla mér svo að taka helstu viðbætur Joomla 1.5 og þýða þær en þær sem ég hafði í huga eru JoomlaPack, JCE editor, sh404SEF og eXtplorer sem eru allar Editors pick viðbætur joomla.org og það eru viðbætur sem við mælum með hérna á Joomla-Íslandi.

 

Stuðningur

Ef þú hefur þýtt einhverja viðbót fyrir síðuna þína þá máttu endilega senda hana inn til okkar svo við getum deilt henni með öðrum.

 

Kveðja RadoX (Magnús Guðlaugsson) 

 
Smá frettir 01/09 Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af RadoX   
Mánudagur, 01 September 2008 20:35

Niðurhalskerfið komið upp

Jæja þá er niðurhalskerfið komið upp og full þýtt, ég mun bæta við skrám í það næstu helgi því ég hef ekki tíma í vikunni til að gera það en aðal skráin er þarna komin.

Niðurhalskerfið sem við notum heitir Remository og er frítt og ég mun láta þýðinguna á því í niðurhalskerfið næstu helgi.

 

Þýðingar uppfærsla 1.5.6.1 komin

Þessi útgáfa er bara með smá breitingu varðandi síðu númerin þetta Fyrsta - Fyrri - Næsta - Síðasta sem var áður beinþýtt og ekki alveg nógu gott.

Þýðingin á admin kerfinu gengur ágætlega og ég hef fengið smá liðstyrk með mér í það sem ætti að flýta fyrir og einnig er byrjað að þýða installerinn þannig að við verðum þá kominn með al-íslenskt Joomla kerfi á næstunni ef allt gengur vel. Eftir það ætti að koma stór lagfæring á síðu hlutanum líka til að samsvara þýðingum úr admin kerfinu. 

Nýjustu þýðinguna 1.5.6.1 er nú hægt að nálgast í Niðurhal hlutanum á síðunni okkar.

 
Smá fréttir 25/8 Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Skrifað af RadoX   
Mánudagur, 25 Ágúst 2008 00:44

Joomla fréttir

Joomla hefur núna sett á laggirnar teimi sem þeir kalla Joomla Security Strike Team (JSST) og er ætlun þeirra að finna og útríma öryggisgalla og gera Joomla öruggara kerfi. Held að allir fagni þessu því ekkert er leiðinlegra en að einhver óviðkomandi fari að krukka í síðunni manns. Joomla.org hefur einnig verið tekið í andlitsliftingu, aðalsíðan er kláruð en aðrar síður verða teknar á svipaðan hátt með tímanum.

Joomla-íslands fréttir

Ég hef verið að vinna við þýðinguna á admin svæðinu og það gengur ágætlega en ég bíst samt ekki við útgáfu á næstunni því þetta tekur langan tíma að gera þetta þótt ég hafi fengið stóra hjálp frá Arnari. Næstu viku ætla ég að einbeita mér að því að klára niðurhalskerfið og vonandi að koma því upp næstu helgi áður en ég held áfram með admin hlutann.

 

kv.RadoX

 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 Næsta > Síðasta >>

Síða 1 af 3

Skoðanakönnun

Er þörf á að þýða admin svæðið
 


Auglýsingar

Joomla!
Joomla! Vinsælasta og mest notaða Open Source kerfi í heimi.
JoomlaCode
JoomlaCode, þróun og dreifing gerð auðveld.
Joomla! Extensions
Joomla! Hlutar, einingar, viðbætur og tungumál í þúsundatali.
Joomla! Búðin
Fyrir allan þinn Joomla! varnað.

Hlekkjaðu til okkar




Hlekkjaðu til okkar...

Tölfræði

mod_vvisit_counterÍ dag21
mod_vvisit_counterÍ gær58
mod_vvisit_counterÞessa viku419
mod_vvisit_counterÞennan mánuð1336
mod_vvisit_counterAlls7022

Tengdir notendur

Það er/u 59 gestir inni
Icelandic_translation_team.png
Joomla-Ísland © 2008 Allur réttur áskilinn - webmaster@joomla-island.com - Keyrt á Joomla! 1.5.8